/ skilmálar
Mr. B slf er rekstaraðili Skin Regimen á Íslandi
Mr. B slf / bpro heildverslun
Smiðsbúð 2, 210 Garðabæ
Sími: 552-5252 / Netfang: bpro@bpro.is
Allar pantanir eru afgreiddar 2-4 dögum eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Skin Regimen Iceland ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá bpro til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Hægt er að greiða 590 kr. fyrir rekjanlegt bréf. Frí heimaending er á pöntunum 7000kr og yfir nema annað komi fram í lýsingu á vöru.
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Íslandspósti. Pakki á pósthús kostar 800kr og heim að dyrum 1300kr. Þegar verslað er fyrir 15.000kr og yfir fellur sendingarkostnaður á seljanda.
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneigninarnótan er í formi kóða sem er notaður hér á síðunni þegar verslað er og gildir í eitt ár frá útgáfudegi. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist.
Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
Skin Regimen notar vafrakökur í því skyni að bæta vefsíðuna og upplifun viðskiptavina okkar. Vafrakökur gera vefsíðunni kleift að fá nafnlausar upplýsingar um hvernig notendur nota vefinn og auðvelda aðgengi notenda að upplýsingum. Þær geyma engar persónuupplýsingar og engum upplýsingum er deilt með þriðja aðila.
Skin Regimen notar einnig Google Analytics og Facebook Pixel til að meðal annars greina hvaðan umferð inn á vefinn er að koma og mæla virkni auglýsinga. Þessar þriðju aðila þjónustur nota sínar eigin vafrakökur til að fylgjast með samskiptum gesta við vefsvæði.
Hægt er að breyta stillingum í vafranum sem notaður er svo upplýsingar séu ekki vistaðar án þess að beðið sé um leyfi fyrst.